Gestabók
Okkur myndi þykja vænt um ef þið skrifið í gestabókina og segið ykkar álit á efni síðunnar.

























     
Þessi síða er tileinkuð verkum
Jónu Rúnu Kvaran

Jóna Rúna er m.a. sjáandi, blaðamaður og rithöfundur

Hún er fædd í Reykjavík árið 1952, þar sem hún býr og starfar.

Jóna Rúna er fjölhæfur einstaklingur
og meðal annars löngu kunn fyrir óvenjulegar dulargáfur sínar, t.d. skyggnilýsingarfundi , óhefðbundið hjálparstarf, ofl.

Hún var um árabil kennari
í Íslensku, bundnu og óbundnu máli, einnig kenndi hún leiklist, skrifaði leikrit og lék í leikritum, auk þess að halda marga fyrirlestra. Jóna Rúna er orðasmiður og það er til marks um orðsnilli hennar að Íslenska málstöðin vildi láta Menntamálaráðuneytið styrkja hana til útgáfu á nýjum orðum sem mikil þörf var orðin á. Því miður sá Jóna Rúna sér ekki fært vegna anna að verða við þeirri bón.

Útvarpsþátturinn á Aðalstöðinni
sem Jóna Rúna sá um á árum áður var mjög uppbyggilegur og vinsæll. Þar komu margir þjóðkunnir Íslendingar í spjall. Margir muna líka eftir námskeiðunum sem hún hélt, þar sem einungis frumsamið efni var notað. Þessi námskeið fjölluðu um að rækta sinn innri jafnt sem ytri mann.

Jóna Rúna hefur flutt fjölda erinda
og skrifað mikið magn af jákvæðum hugleiðingum í gegnum árin, sem byggja á kærleikshvetjandi lífssýn, eins og sjá má sýnishorn af hér á síðunni.

Tónlistarhæfileikar, tónvísi
og færni hennar á hin ýmsu hljóðfæri er einstök. Eins og sjá má á vefsíðunni er Jóna Rúna líka mikið myndlistargúró, en 1984 hélt hún málverkasýningu í Eden í Hveragerði þar sem öll verkin seldust upp,

Jóna Rúna hefur gefið samþykki
fyrir því að úrval af hug- og handverkum hennar verði birt á þessari vefsíðu ef það mætti verða til þess að auka trú fólks á gildi góðleikans í samskiptum.

Nýtt efni: 03.07.2010: Flökkuljóð

Vefsíðugerð: Halla Árnadóttir
_


Póstur til Jónu Rúnu